Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 11. maí 2023 16:30
Elvar Geir Magnússon
Bennacer þarf að fara undir hnífinn
Mynd: EPA
Alsírski miðjumaðurinn Ismael Bennacer þarf að fara í aðgerð vegna hnémeiðsla sem hann hlaut í Meistaradeildartapinu gegn Inter í gær.

Bennacer er 25 ára og hefur verið í lykilhlutverki hjá Mílanóliðinu en hann þurfti að fara af velli eftir átján mínútna leik í gær.

Hann yfirgaf leikvanginn á hækjum og verður frá næstu mánuði, það er allavega ljóst að tímabilinu er lokið hjá honum. Talið er að hann muni fara í aðgerðina á laugardaginn.

Inter vann 2-0 sigur í gær og er komið með annan fótinn í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner