fim 11. maí 2023 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Inzaghi: Hefðum getað skorað fleiri mörk
Mynd: EPA
Simone Inzaghi, þjálfari Inter, var hæstánægður með frammistöðu sinna manna í 2-0 sigrinum á Milan í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær.

Edin Dzeko og Henrikh Mkhitaryan skoruðu tvö mörk á fyrstu ellefu mínútunum og gátu jafnvel náð í þriðja markið stuttu síðar en boltinn fór í stöng.

Inter er í góðri stöðu fyrir síðari leikinn sem fer fram í næstu viku en þá spilar liðið heimaleikinn og verður því völlurinn troðfullur af stuðningsmönnum Inter.

„Ég er rosalega ánægður. Fyrri hálfleikurinn var stórkostlegur og við hefðum getað skorað fleiri mörk. Þetta var frábær leikmaður og við höfum þegar farið í gegnum margar umferðir þannig við vitum að þetta er bara hálfleikur.“

„Við verðum með stuðningsmennina með okkur í liði í seinni leiknum og vitum að við þurfum að taka eitt skref í viðbót til að láta drauminn verða að veruleika.“
Athugasemdir
banner
banner
banner