Liverpool vill Barcola - Sane kominn til Tyrklands - Villa, Newcastle og Tottenham hafa áhuga á Sancho
   mið 11. júní 2025 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Eiga ekki að vera nálægt enska landsliðshópnum
Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands.
Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands.
Mynd: EPA
Fyrstu mánuðir Thomas Tuchel sem landsliðsþjálfara Englands hafa ekki verið neinn dans á rósum. Liðið tapaði gegn Senegal í gær eftir að hafa rétt marið Andorra í leiknum þar áður.

Jamie O'Hara, fyrrum leikmaður Tottenham, segir að Tuchel megi alveg hætta að velja tvo leikmenn sem voru í síðasta hóp hjá honum.

„Ég held að hann þurfi að losa sig við nokkra af þessum eldri leikmönnum," sagði O'Hara.

„Þetta eru nýir tímar og við þurfum ferska leikmenn eins og til dæmis Morgan Gibbs-White, Eze og Cole Palmer. Þú þarft að taka stórar ákvarðanir og losa þig við leikmenn eins og Kyle Walker. 'Takk vinur, en það er kominn tími til að fara'."

O'Hara sagði að það væri sama með Jordan Henderson. Ef liðið ætlaði sér að ná árangri á HM á næsta ári þá gæti það ekki verið að treysta á þessa leikmenn.
Athugasemdir
banner