Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 12. maí 2023 11:10
Elvar Geir Magnússon
Helgi Mikael dæmir stórleikinn fyrir norðan
Helgi Mikael Jónasson.
Helgi Mikael Jónasson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
7. umferð Bestu deildar karla verður spiluð á morgun laugardag og á sunnudag. Áhugaverð umferð en tveir stórleikir verða á morgun.

Málarameistarinn Erlendur Eiríksson dæmir leik KR og Breiðabliks og Helgi Mikael Jónasson verður með flautuna í stórleik KA og Vals.

Reynsluboltarnir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Andri Vigfússon verða aðstoðardómarar fyrir norðan og Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson verður fjórði dómari.

Sigurður Hjörtur Þrastarson verður dómari í leik Stjörnunnar og ÍBV en ekki hefur verið opinberað hverjir dæma leiki sunnudagsins.

laugardagur 13. maí
14:00 Stjarnan-ÍBV (Sigurður Hjörtur Þrastarson)
16:00 KR-Breiðablik (Erlendur Eiríksson)
16:00 KA-Valur (Helgi Mikael Jónasson)

sunnudagur 14. maí
17:00 Keflavík-HK
19:15 Fylkir-Fram
19:15 Víkingur R.-FH
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner