Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 12. maí 2023 21:13
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjudeildin: Selfoss vann fimm marka leik í Breiðholti
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leiknir R. tók á móti Selfossi í 2. umferð sumarsins í Lengjudeild karla og úr varð gríðarlega fjörug viðureign þar sem Selfyssingar byrjuðu af miklum krafti.


Selfoss komst nálægt því að skora í tvígang á upphafsmínútunum en heimamenn refsuðu með marki frá Daníeli Finns Matthíassyni eftir flotta fyrirgjöf.

Selfoss var áfram sterkari aðilinn og verðskuldaði jöfnunarmarkið sem Jón Vignir Pétursson gerði á 24. mínútu. Gary Martin átti nokkrar marktilraunir en staðan var 1-1 í leikhlé eftir að gestirnir frá Selfossi höfðu þó verið sterkari aðilinn.

Guðmundur Tyrfingsson og Valdimar Jóhannsson komu Selfossi í tveggja marka forystu eftir leikhlé, þar sem Valdimar lagði fyrst upp fyrir Guðmund áður en hann skoraði sjálfur.

Ólafur Flóki Stephensen minnkaði muninn skömmu síðar og sóttu Leiknismenn eins og þeir gátu á lokakaflanum, án þess þó að skapa sér hættuleg færi. Þeim tókst ekki að jafna og urðu lokatölur 2-3. Bæði lið eru því með þrjú stig eftir tvær fyrstu umferðirnar.

Lestu um leikinn

Leiknir R. 2 - 3 Selfoss
1-0 Daníel Finns Matthíasson ('13)
1-1 Jón Vignir Pétursson ('24)
1-2 Guðmundur Tyrfingsson ('50)
1-3 Valdimar Jóhannsson ('59)
2-3 Ólafur Flóki Stephensen ('66)

Grindavík tók þá á móti Gróttu og gerðu liðin markalaust jafntefli í tíðindalitlum leik við slæmar vallaraðstæður.

Pétur Theódór Árnason átti besta færi fyrri hálfleiksins með skot úr D-boganum. Í síðari hálfleik hitti Óskar Örn Hauksson boltann ekki í dauðafæri og þá klúðruðu Seltirningar færi tveir gegn markverði.

Boltinn rataði aldrei í netið og er Grindavík með fjögur stig eftir tvær fyrstu umferðir tímabilsins. Grótta er með tvö stig.

Lestu um leikinn

Grindavík 0 - 0 Grótta


Athugasemdir
banner
banner
banner