Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 12. maí 2023 14:00
Elvar Geir Magnússon
Messi byrjar hjá PSG á morgun
Mynd: EPA
Christophe Galtier stjóri Paris St-Germain hefur staðfest að Lionel Messi muni snúa aftur á morgun og verði í byrjunarliðinu gegn Ajaccio.

PSG setti Messi í tímabundið bann eftir að hann fór án leyfis í ferð til Sádi-Arabíu.

„Auðvitað hef´eg talað við Messi um endurkomu hans, til að sjá hvernig hugarfar hans er. Hann er mjög yfirvegaður," segir Galtier.

„Ég fann að hann viill spila, hann er mjög ákveðinn og vill vinna annan titil."

PSG er með sex stiga forystu á Lens þegar fjórar umferðir eru eftir af frönsku deildinni. Ajaccio er í 18. sæti og PSG ætti að vinna sannfærandi sigur á morgun ef allt er eðlilegt.
Athugasemdir
banner
banner