
Mótsmiðasala á heimaleiki Íslands í undankeppni EM 2024 er nú í fullum gangi á Tix.is en henni lýkur næstkomandi miðvikudag, 17. maí.
Smelltu hér til að skoða mótsmiðasöluna á Tix.is
Fyrsti heimaleikurinn verður spilaður á þjóðhátíðardaginn, 17. júní, en það er leikur gegn Slóvakíu og þremur dögum síðar kemur Portúgal á Laugardalsvöll.. Mótsmiðar gilda á alla heimaleiki Íslands í keppninni.
Með kaupum á mótsmiða fæst 20% afsláttur af miðum í almennri miðasölu. Vakin er athygli á fleiri og fjölbreyttari verðflokkum á landsleiki á Laugardalsvelli en áður. Nú er hægt að kaupa miða í fimm verðflokkum, sem fyrr með 50% afslætti fyrir 16 ára og yngri.
Miðakaupendur fá sömu sætin á alla fimm leikina og er hægt að fá miða allt frá kr. 8.800 til kr. 36.400 á alla fimm leikina. Mótsmiðasölu lýkur miðvikudaginn 17. maí klukkan 12:00. Almenn miðasala á stakan leik hefst tveimur vikum fyrir hvern leik.
Heimaleikir Íslands:
- Ísland – Slóvakía laugardaginn 17. júní kl. 18:45
- Ísland – Portúgal þriðjudaginn 20. júní kl. 18:45
- Ísland – Bosnía Hersegóvína mánudaginn 11. september kl. 18:45
- Ísland – Lúxemborg föstudaginn 13. október kl. 18:45
- Ísland – Liechtenstein mánudaginn 16. október kl. 18:45