Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 12. maí 2023 17:30
Ívan Guðjón Baldursson
Rúnar Már skoraði í þriðja leiknum í röð - Ein umferð eftir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Voluntari 2 - 0 Botosani
1-0 Rúnar Már Sigurjónsson ('23)
2-0 Ricardinho ('94)


Rúnar Már Sigurjónsson hefur verið gríðarlega mikilvægur hlekkur í liði FC Voluntari sem spilar í rúmensku deildinni.

Hann skoraði í 2-0 sigri liðsins í dag og er þetta þriðji leikurinn í röð sem hann skorar í. Voluntari er á mikilli siglingu og var sigurinn í dag afar mikilvægur þar sem liðið er í harðri baráttu um umspilssæti fyrir Sambandsdeildina.

Voluntari endaði í neðri hluta deildarinnar þegar henni var skipt upp í tvennt fyrir lokakafla tímabilsins. Liðið þarf sigur í lokaumferðinni og að treysta á hagstæð úrslit á öðrum stöðum til að tryggja sér umspilssæti fyrir Sambandsdeildina.

Rúnar Már verður 33 ára gamall þegar samningur hans Voluntari rennur út í sumar.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner