Búist er við því að Declan Rice yfirgefi West Ham í sumar. Samningur hans rennur út 2024 en West Ham er með rétt á að framlengja hann um ár í viðbót.
Öll stærstu félög England vilja fá þennan öfluga enska miðjumann.
Öll stærstu félög England vilja fá þennan öfluga enska miðjumann.
„Við vonum svo sannarlega að Dec verði áfram, það yrði rábært að halda honum en við erum meðvitaðir um að raunin gæti orðið önnur," segir David Moyes, stjóri West Ham.
„Okkar áætlun er að halda Dec en við erum meðvitaðir um að það eru góðar líkur á því að hann fari."
Athugasemdir