Real Madrid mun halda fund á morgun þar sem Trent Alexander-Arnold verður kynntur sem nýr leikmaður félagsins.
Spænska stórveldið greinir frá þessu á heimasíðu sinni.
Spænska stórveldið greinir frá þessu á heimasíðu sinni.
Alexander-Arnold mun skrifa undir samning sinn við Real Madrid í hádeginu á spænskum tíma. Svo verður blásið til kynningar í höfuðstöðvum félagsins þar sem fjölmiðlar fá tækifæri til að spjalla við enska bakvörðinn.
Real Madrid fær Alexander-Arnold á frjálsri sölu en borgar Liverpool 10 milljónir evra til þess að fá hann fyrr svo hann geti spilað á HM félagsliða.
Alexander-Arnold, sem er 26 ára, hafði verið hjá Liverpool síðan hann var sex ára gamall og hefur unnið fjölda titla með félaginu, þar á meðal tvo Englandsmeistaratitla, Meistaradeildina og FA-bikarinn. Hann hefur skorað 23 mörk og gefið 86 stoðsendingar í 352 leikjum fyrir félagið.
Athugasemdir