Sóknarmaðurinn Darwin Nunez hefur ekki áhuga á því að fara til Sádi-Arabíu í sumar.
Liverpool vill selja Nunez í sumarglugganum en leikmaðurinn vill spila áfram í Evrópu og hefur ekki í hyggju að fara til Sádi-Arabíu þrátt fyrir áhuga þaðan.
Liverpool vill selja Nunez í sumarglugganum en leikmaðurinn vill spila áfram í Evrópu og hefur ekki í hyggju að fara til Sádi-Arabíu þrátt fyrir áhuga þaðan.
Hinn 25 ára gamli Nunez á enn þrjú ár eftir af samningi sínum við Liverpool en hann var ekki í stóru hlutverki á liðnu tímabili.
Liverpool hafnaði 60 milljón punda tilboði frá Al-Nassr í Nunez í janúar, en það var meiri áhugi á honum frá Sádi-Arabíu á undanförnum vikum. Al-Hilal spurðist fyrir um hann en Nunez hefur ekki áhuga.
Hann ætlar sér að vera áfram í Evrópu og hafa Atletico Madrid og Napoli áhuga á honum, en það er spurning hvort þessi félög séu tilbúin að borga það sem félögin í Sádi-Arabíu eru tilbúin að borga.
Athugasemdir