Liverpool vill Barcola - Sane kominn til Tyrklands - Villa, Newcastle og Tottenham hafa áhuga á Sancho
   mið 11. júní 2025 14:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Reyndu að nota Kristian Nökkva til að lækka verðmiðann
Kristian Nökkvi Hlynsson.
Kristian Nökkvi Hlynsson.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Kristian Nökkvi Hlynsson er eftirsóttur eftir lánsdvöl sína með Sparta Rotterdam í Hollandi. Svo virðist sem þess efnilegi leikmaður verði ekki áfram hjá Ajax.

Orri Rafn Sigurðsson, fyrrum fréttamaður Fótbolta.net, segir frá því á samfélagsmiðlinum X að það sé áhugi á Íslendingnum frá félögum í Hollandi og Þýskalandi. Nefnir hann þar AZ Alkmaar, Twente, Hertha Berlín og Fortuna Düsseldorf.

Þá var sagt frá því í hollenskum fjölmiðlum um daginn að Ajax hafi reynt að kaupa markvörðinn Robin Roefs frá NEC Nijmegen.

Í þeim viðræðum hafi Ajax reynt að lækka verðmiða NEC með því að setja Kristian inn í kauptilboðið, en NEC hafði ekki áhuga á því.

Ajax er núna að horfa til Vitezslav Jaros, markvarðar Liverpool.

Kristian er 21 árs gamall miðjumaður sem var hluti af íslenska landsliðshópnum í nýliðnu verkefni. Hann kom inn af bekknum í tapi gegn Norður-Írlandi í gær.


Athugasemdir
banner
banner
banner