Hörð barátta um Rogers - Juventus vill Alisonn - Olise orðaður við Real
Óli Skúla: Það er vinna framundan
Sölvi Geir: Ég veit ekki hvaða rök það eru
Anton um mistökin: Gylfi sá sem maður hefði síst viljað senda á
Gylfi Þór: Í 99 skiptum af 100 fer þessi bolti langt yfir mig
Nýliðinn Linda Líf: Hann sendi á mig, ég svaraði, hann hringdi svo og lét mig vita
Sá skemmtilegasti spilar í Garðabæ - „Stjörnumenn megi alveg vera spenntir"
Yngsti aðalmarkvörðurinn í Bestu - „Erfiðir átta mánuðir"
Thelma Karen: Bjóst ekki við svona stóru hlutverki
Álitið - Hver verður skemmtilegastur í viðtölum?
Höskuldur hungraður: Ætlum að svara fyrir síðasta tímabil
Veit ekki hvort Blikarnir fari í rokk og ról
Óli Skúla: Erum með þrjá öfluga miðverði
Sveindís: Komið og horfið á okkur vinna Úkraínu
Fyrirliðinn á leið í sinn fyrsta leik í efstu deild - „Pressan kemur frá sjálfum mér"
Álitið - Hver er huggulegastur?
„Svíafíflið þitt“ - Gæðastjórinn heldur rígnum lifandi
Hólmar Örn: Hefði engu máli skipt hvernig við hefðum æft
Guðrún sendir skýr skilaboð fyrir heimaleikina
Katla: Er alltaf að segja henni að koma og spila með íslenska landsliðinu
Sölvi Geir: Skotmarkið á okkur er stærra og við þurfum að gera meira
   lau 12. ágúst 2023 19:55
Sölvi Haraldsson
Dean Martin eftir 4-3 tap: Ég er bara reiður
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég er bara reiður. Reiður með liðið.“ sagði Dean Martin eftir tap gegn Þrótti í Laugardalnum. Leikurinn fór 4-3 fyrir Þrótti en þetta er annar tapleikur Selfossar í röð.


Lestu um leikinn: Þróttur R. 4 -  3 Selfoss

Hvað fannst þér fara úrskeðis í dag?

Við vorum bara ekki nógu góðir, punktur. Við vorum ekki nálægt mönnum og vorum bara að bíða eftir að einhver annar myndi gera eitthvað. Bara langt frá því sem við vitum að við getum gert.

Þið byrjið leikinn frábærlega og komist yfir en síðan fáið þið tvö mörk á ykkur fyrir hálfleik. Er ekki svekkjandi að missa þetta svona auðveldlega niður eftir svona góða byrjun?

Mjög svekkjandi. Það bara gerðist ekki sem þarf að gerast til þess að vinna fótboltaleik. Menn verða bara að taka ábyrgð.

Síðan minnkið þið muninn í 3-2 en fáið á ykkur fjórða markið í lokin. Var það högg í magann að fá það mark á sig eftir að hafa verið mikið inni í leiknum í restina?

Í rauninni ekki. Það var bara skítamark sem við fengum á okkur líka. Þá átt þetta bara skilið ef þú ert ekki á tánum og ekki tilbúnir að leggja sig fram eins og var hjá okkur. Okkar dagur í dag var bara skelfilegur sem lið.

Þú talar um að þínir menn hafa verið langt frá mönnum og ekki alveg á tánum. Afhverju heldur þú að það hafi verið?

Við töpuðum seinasta leik líka. Þetta er bara leiðinleg frammistaða í dag. Við leggjum okkur ekki næginlega vel fram í dag sem lið. Við vinnum sem lið, ekki sem einstaklingar heldur lið.“

Í næsta leik eigið þið Njarðvík á heimavelli, hvernig metur þú framhaldið?

Ég met ekki neitt. Ég met ekkert framhaldið. Ég sé bara hvernig menn eru á morgun og þá byrjum við að skipuleggja okkur fyrir næsta leik. Ég met ekki neitt.“ sagði Dean Martin að lokum eftir 4-3 tap gegn Þrótti.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.


Slapp
banner