Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 13. maí 2023 16:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Albert skoraði en Genoa missti af toppsætinu - Nökkvi á skotskónum
Mynd: Getty Images

Nökkvi Þeyr Þórisson var í byrjunarliði Beerschot sem tók á moti Lierse í næst efstu deild í Belgíu í dag.


Hann kom liðinu yfir á 34. mínútu en fjórum mínútum síðar var Lierse komið með forystuna og hélt henni út leikinn.

Þetta var síðasti leikurinn á tímabilinu en Beerschot er í 3. sæti en Club Brugge u23 getur náð þeim með sigri á Beeveren sem er í baráttu um að komast upp í efstu deild.

Ljóst er að Genoa getur ekki unnið ítölsku B deildina en liðið hefur tryggt sér 2. sætið og þar með sæti í A deildinni á næstu leiktíð. Genoa tapaði 3-2 gegn Frosinone í toppbaráttunni í dag en Albert Guðmundsson klóraði í bakkann í uppbótartíma.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner