Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 13. maí 2023 12:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bruno: Vildum gera stærri hluti
Mynd: EPA

Bruno Fernandes leikmaður Manchester United biðlar til leikmanna liðsins að einbeita sér að sínu liði.

Man Utd hefur verið að hiksta undanfarið en liðið hefur aðeins náð í einn sigur í síðustu fjórum leikjum og Liverpool er aðeins stigi á eftir erkifjendum sínum en United á leik til góða.


United vann deildabikarinn og mætir Man City í úrslitum enska bikarsins en Bruno hefði viljað ná betri árangri í deildinni.

„Við vildum vera í topp fjórum, við vissum að við værum með gæðin til þess. Við stefndum á að gera stærri hluti en það hafa verið hæðir og lægðir, við komumst ekki í þá stöðu sem við vildum en við erum í topp fjórum. Við getum haldið þeirri stöðu ef við vinnum okkar vinnu, náum í úrslit og einbeitum okkur ekki að öðrum," sagði Bruno Fernandes.


Athugasemdir
banner
banner
banner