Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 13. maí 2023 10:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið Leeds og Newcastle: Almiron, Wilson og Isak fremstir
Mynd: EPA

Leeds United fær Newcastle United í heimsókn í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.


Stóri Sam virðist stilla upp í 3-4-3. Marc Roca og Adam Forshaw setjast á bekkinn og Sam Greenwood og Robin Koch koma inn. Þá kemur Rodrigo einnig inn í liðið fyrir Wilfried Gnonto.

Rodrigo kom inn á gegn Man City í síðustu umferð og skoraði í 2-1 tapi.

Joel Robles er áfram í markinu á undan Illan Meslier.

Það er aðeins ein breyting á liðinu frá 2-0 tapi gegn Arsenal en Jacob Murphy sest á bekkinn og Miguel Almiron kemur inn á í hans stað. Hann er ásamt Callum Wilson og Alexander Isak í fremstu víglínu.

Leeds: Robles; Kristensen, Koch, Wober; Ayling, McKennie, Greenwood, Firpo; Rodrigo, Harrison, Bamford.

Newcastle: Pope; Trippier, Schar, Botman, Burn; Guimaraes, Willock, Joelinton; Almiron, Wilson, Isak.


Athugasemdir
banner
banner