Walesverjinn Gareth Bale lék sinn fyrsta leik í búningi Real Madrid í gær þegar liðið gerði 2-2 jafntefli geng Villarreal á útivelli.
Real greiddi Tottenham 100 milljónir evra fyrir Bale á lokadegi félagaskiptagluggans, en samkvæmt heimildum franska blaðinu L'Equipe mun Manchester United hafa verið reiðubúið að greiða enn hærra verð fyrir hann.

Heimildarmaður blaðsins heldur því fram að United hafi boðið tæplega 150 milljónir evra í Bale, en hugur leikmannsins hafi hinsvegar einungis legið til Spánar.
Þá munu PSG einnig hafa boðið um 100 milljónir evra í hann í sumar, en Frakklandsmeistararnir fengu sama svar og United.
Bale skoraði í sínum fyrsta leik með Real, en hann jafnaði þá metin í 1-1 í fyrri hálfleik.
Athugasemdir