Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
Útvarpsþátturinn - Mánuður í Bestu deildina
Hugarburðarbolti GW 29 Svaðalega Salah salan.
Enski boltinn - Hveitibrauðsdagarnir að baki
Kjaftæðið - Tottenham-menn skíthræddir við fall
Hugarburðarbolti GW 28 Markvörður með stálhönd.
Enski boltinn - Heimskur Neto, trylltur Sesko og Spurs í djúpum skít
Útvarpsþátturinn - Heimir og hættulegar aðstæður
Kjaftæðið - Allt farið á fullt í íslenska og frábær saga af Kasper Högh
Benoný Breki: Hann er besti miðjumaðurinn í deildinni
Hugarburðarbolti GW 27 Tvö met slegin í Enska!
Kjaftæðið - Liverpool rændi stigum í Nottingham
Enski boltinn - Verða þau í mismunandi deildum á næsta tímabili?
Kjaftæðið - Slátrun í Boganum og allt sauð uppúr á Molineux
Fótbolta nördinn - Dr. Football vs Stjarnan
Enski boltinn í fyrsta sinn í mynd - Tudor tekur við Tottenham
Útvarpsþátturinn - Farið yfir sviðið með Eysteini
Hugarburðarbolti GW 26 Stærsta klúður tímabilsins ?
Kjaftæðið - Arsenal missteig sig og menn reknir
Kjaftæðið - Carrick kláraði Tottenham og Jökull Andrésson segir sögur
Hugarburðarbolti GW 25 Sló met í Fantasy leiknum !
   sun 15. september 2013 10:10
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Upptaka - Gummi Steinars: KR verður vel að titlinum komið
KR-ingar hafa tvo menn í hverri stöðu.
KR-ingar hafa tvo menn í hverri stöðu.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
„Þetta myndi skrifast sem vonbrigðatímabil hjá Blikum
„Þetta myndi skrifast sem vonbrigðatímabil hjá Blikum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Steinarsson, sérfræðingur Fótbolta.net. hefur á tilfinningunni að það verði engin spenna þegar lokaumferð Pepsi-deildarinnar rennur upp. Guðmundur skoðaði komandi leiki á X-inu í gær og má hlusta á spjallið við hann í spilaranum hér að ofan.

„Ég hef grun um það. Leikirnir eru að spilast þannig að þegar lokaumferðin verður mun ekkert vera undir. Ég held að KR-ingar verði orðnir meistarar og FH og Stjarnan komin í Evrópukeppni. ÍA og eitthvað lið verða fallin," segir Guðmundur sem heldur að Þór muni ekki falla.

„Ég held að þeir leiti í reynslubankann og læri af sumrinu 2011. Ég tel að þeir muni bjarga sér þrátt fyrir að ég hafi ekki séð lið fá jafn mörg klaufaleg mörk á sig og Þórsararnir á þessu ári. Margt af þessu er með hreinum ólíkindum. Ég veit ekki hvort þetta sé stressið eða pressan en við erum að sjá ótrúleg mistök viku eftir viku."

Ekkert hefur gengið hjá Frömurum eftir að þeir urðu bikarmeistarar og þeir eru enn í fallhættu.

„Það má segja að Fram sé í frjálsu falli. Þeir gætu verið í hættu fram í lokaleik. Við gætum horft á þá furðulegu staðreynd að Þorvaldur Örlygsson færi með bæði liðin sín niður."

Vonbrigðatímabil Blika
Breiðablik gerði jafntefli við Val á föstudag. Fyrst liðinu tókst ekki að vinna þann leik verður erfitt fyrir Kópavogsliðið að ná Evrópusæti. Liðið hefur aðeins unnið einn af síðustu sex leikjum.

„Þeir gáfu út yfirlýsingu um að þeir ætluðu að berjast um titilinn í ár, bæði með því að fá til sín sterka leikmenn og öðru. Mér finnst þeir aldrei hafa litið þannig út að þeir væru líklegir til að taka toppsætið. Þeir hafa átt einn og einn mjög góðan leik en eitthvað hefur vantað. Þetta myndi skrifast sem vonbrigðatímabil hjá þeim. Þeir munu væntanlega skoða hvað betur mætti fara, segir Guðmundur.

„Ef Stjarnan nær að tryggja sér inn í Evrópusæti er það sigur fyrir þá. Logi á hrós skilið að hafa betrumbætt liðið."

KR með teymi í landsliðsklassa
„KR-ingar hafa verið rosaflottir í allt sumar og sýnt langstærstu breiddina. Sjáum til dæmis Rúnar í síðasta leik. Ég efaðist um hann en hann tróð sokki upp í kjaftinn á mér og sýndi frábæran leik. KR hefur tvo menn í hverju einustu stöðu um allan völl. Þeir eru vel mannaðir og þetta hefur verið virkilega flottir. Þeir verða vel að þessum titli komnir."

„Þjálfarateymi KR er rándýrt með Rúnar, Pétur og Gumma Hreiðars. Þetta er bara teymi í landsliðsklassa. Það skilar alltaf aukastigum að hafa umgjörðina og annað í kringum liðið í þessum klassa."

Í upptökunni hér að ofan má heyra spjallið við Guðmund og einnig er farið yfir úrvalslið 19. umferðar Pepsi-deildarinnar.

Leikir dagsins:
17:00 KR - Fylkir
17:00 Þór - Keflavík
17:00 ÍA - Víkingur Ó.

Leikir á morgun:
17:15 Breiðablik - Fram
17:15 ÍBV - Stjarnan
17:15 FH - Valur
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner