Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
   þri 17. mars 2026 19:56
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu mörkin - Lengjubikarinn: Fylkir mætir KR í úrslitum eftir sigur á Þór
Benedikt Daríus innsiglaði sigur Fylkismanna
Benedikt Daríus innsiglaði sigur Fylkismanna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór 0 - 2 Fylkir
0-1 Guðmundur Tyrfingsson ('13 )
0-2 Benedikt Daríus Garðarsson ('75 )
Rautt spjald: Eiður Benedikt Eiríksson, Þór ('83) Lestu um leikinn

Fylkir tryggði sér sæti í úrslitum Lengjubikarsins eftir sigur á Þór á Akureyri í undanúrslitum í kvöld.

Fylkismenn brutu ísinn eftir tæplega stundafjórðung þegar Guðmundur Tyrfingsson skoraði með góðu skoti í fjærhornið.

Þeir voru nálægt því að bæta við öðru marki stuttu síðar en Benedikt Daríus Garðarson komst ekki í boltann eftir sendingu frá Eyþóri Aroni Wöhler.

Christian Greko Jakobsen fékk gott færi fyrir Þórsara eftir rúmlega hálftíma leik en Ólafur Kristófer Helgason varði vel frá honum. Strax í kjölfarið komst Guðmundur Tyrfingsson í færi hinu megin en Aron Birkir Stefánsson sá við honum.

Þórsarar voru komnir hátt upp völlinn með liðið og reyndu að ná inn jöfnunarmarkinu en Benedikt Daríus slapp í gegn og innsiglaði sigur Fylkismanna þegar stundafjórðungur var til leiksloka.

Fylkir er því komið í úrslit en liðið fær þar KR í heimsókn á tekk VÖLLINN á laugardaginn.


Athugasemdir
banner
banner