Sigurður Heiðar Höskuldsson var svekktur með leik sinna manna í 5-2 tapi gegn KR á Meistaravöllum fyrr í kvöld.
Lestu um leikinn: KR 5 - 2 Þór
„Held að rosalega fá lið ráði við KR liðið í þessum takti og á þessu tempoi, bara góður skóli fyrir okkur.''
„Heildarbragurinn á okkur réð ekki alveg við þetta, mér fannst samt sumir leikmenn sýna að þeir eigi heima hérna en það voru ekki alveg nógu margar góðar frammistöður.''
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.























