Munum gera okkur grein fyrir því þegar við verðum gamlir
„Þetta var ótrúlega gaman, frábært að ná svona frammistöðu. Við getum verið rosalega stoltir af sjálfum okkur," sagði Oliver Sigurjónsson, miðjumaður í liði Breiðabliks, eftir sigur gegn Shamrock Rovers á Kópavogsvelli í kvöld.
Breiðablik vann báða leikina og er komið í 2. umferð forkeppninnar í Meistaradeildinni.
Breiðablik vann báða leikina og er komið í 2. umferð forkeppninnar í Meistaradeildinni.
Lestu um leikinn: Breiðablik 2 - 1 Shamrock Rovers
„Mjög sterk frammistaða, Shamrock er gott lið og við vorum bara grjótharðir. Ég held að við höfum komið þeim á óvart fyrstu 30 mínúturnar í báðum leikjunum; ég hélt þeir yrðu meira klárir í háa orkustigið í þessum leik eftir síðasta leik. Frammistaðan er frábær og við þurfum að byggja á þessu. Við þurfum að byggja á þessu, koma grjótharðir á móti FCK til að 'matcha' okkur við ennþá betra lið."
Oliver fékk á sig víti þegar boltinn fór í höndina á honum innan vítateigs.
„Hann ýtti mér fyrst þannig ég missi jafnvægið og er einhvern veginn að elta hann. Ég er ekki einu sinni að horfa á boltann, hann fer í handarbakið en þeir horfa ekkert á einhverjar ýtingar fyrst, bara hægt á það þegar ég er að hlaupa. Mér fannst þetta vera frekar 'soft' en dómarinn mat þetta öðruvísi."
Oliver var svo spurður út í markið hjá Höskuldi Gunnlaugssyni, var hann að reyna setja boltann í fjær?
„Nei, langt í frá. Ég var þarna á nærstönginni og hann sá örugglega litla hausinn á mér kláran í að negla boltanum inn. Þú býrð oft til þína eigin heppni. Höskuldur er góður leikmaður en ég ætla ekki að leyfa honum að njóta vafans í þetta skiptið."
Oliver ræðir um komandi einvígi við FCK í viðtalinu og má heyra svörin í spilaranum efst.
„Ég held að við gerum okkur ekki alveg grein fyrir því núna hversu stórt þetta er og hvað þetta skiptir miklu máli fyrir okkur og klúbbinn. Það er ótrúlega gaman að vera með marga uppalda Blika og alla þessa stuðningsmenn. Það er gaman að vera stuðningsmaður Breiðabliks og vera með inn á vellinum, gera eitthvað í þessu. Það er það sem mann dreymir um sem stuðningsmann þegar maður er lítill. Ég held við gerum okkur grein fyrir því þegar við erum orðnir gamlir hversu stórt þetta er."
Átta af ellefu í byrjunarliði Breiðabliks eru uppaldir hjá félaginu og koma úr árgöngum á bilinu 1990-1997. Þetta er eitthvað sérstakt.
„Ég held það, það eru ekki mörg lið í heiminum sem eru með þetta. Við erum stoltir af þessu sem Blikar og þetta gefur stuðningsmönnum og leikmönnum gífurlegan kraft og vilja. Það er enginn að efast um að einhver sé ekki að leggja sig fram. Það býr til band og styrk. Í gamla daga var talað um að menn skáru sig á púls til að vera blóðbræður. Manni líður stundum þannig eftir að hafa gengið í gegnum erfiðleika með þessum gaurum, maður veit alltaf að það sé maður sem bakkar mann upp og það gerir það að verkum að maður er tilbúinn að taka þetta extra fyrir hvorn annan."
Að vera kominn í aðra umferð í forkeppni Meistaradeildarinnar, er þetta stærsti einstaki sigur á ferlinum?
„Í meistaraflokksfótbolta. Fyrir mig var risastórt að fara á EM U17. Það hefði verið æðislegt að vinna Úkraínu í U21 til að fara á lokamótið, en þetta er stærsti leikur sem við höfum unnið og stærsta sem ég hef gert þegar ég lít á ferilinn. Auðvitað horfir maður á Íslandsmeistaratitilinn sem maður lagði metnað í allt sitt líf, en þetta er eitt skref nær riðlakeppni og það er svo stórt."
„Mér líður svipað og þegar við unnum Val í fyrra og náðum held ég átta stiga forskoti, það var svo risastórt. Þetta er hluti af því, erum núna svo nálægt markmiðum okkar og það gerir þetta svo ótrúlega stórt," sagði Oliver að lokum. Viðtalið í heild má sjá í spilaranum efst.
Athugasemdir