Díaz á förum frá Liverpool - Newcastle fær markvörð Burnley - Man City ætlar að losa sig við reynda leikmenn
   fös 21. febrúar 2025 22:48
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Burnley skoraði fjögur og hélt hreinu tólfta leikinn í röð
Mynd: EPA
Burnley heldur áfram að heilla í ensku B-deildinni en liðið vann 4-0 stórsigur á Sheffield Wednesday í kvöld og hefur nú haldið hreinu í tólf leikjum í röð.

Það er algert rannsóknarnefni hvernig Burnley hefur farið að því að loka markinu.

Vörnin hefur staðið sína plikt fullkomlega og hefur James Trafford ekki verið síðri í markinu, en hann hefur fengið 25 skot á sig í síðustu tólf leikjum og meðal annars varið tvö víti.

Burnley hélt áfram á þessu magnaða skriði í kvöld og gerði gott betur með því að skora fjögur mörk. Marcus Edwards kom Burnley í forystu í lok fyrri hálfleiks og þá gerðu þeir Josh Brownhill, Connor Roberts og Benson Manuel þrjú mörk á síðasta hálftímanum.

Þetta lið er það fyrsta í sögunni til að halda hreinu í tólf leikjum og er liðið nú aðeins fjórum stigum frá toppsætinu. Wednesday er á meðan í 10. sæti með 45 stig.

Bristol City vann 2-1 endurkomusigur á Middlesbrough á Ashton Gate.

Tommy Conway, fyrrum leikmaður Bristol-manna, skoraði fyrir Boro á 37. mínútu en George Earthy kom inn af bekknum og skoraði tvö fyrir Bristol sem er nú komið í 6. sæti með 49 stig á meðan Boro er í 11. sæti með 44 stig.

Bristol City 2 - 1 Middlesbrough
0-1 Tommy Conway ('37 )
1-1 George Earthy ('72 )
2-1 George Earthy ('82 )

Burnley 4 - 0 Sheffield Wed
1-0 Marcus Edwards ('43 )
2-0 Josh Brownhill ('62 )
3-0 Connor Roberts ('70 )
4-0 Benson Manuel ('90 )
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leeds 33 21 9 3 68 20 +48 72
2 Sheffield Utd 33 22 6 5 47 23 +24 70
3 Burnley 34 18 14 2 43 9 +34 68
4 Sunderland 33 17 11 5 50 30 +20 62
5 Blackburn 33 15 6 12 39 31 +8 51
6 Bristol City 34 12 13 9 43 38 +5 49
7 West Brom 33 11 15 7 42 31 +11 48
8 Coventry 33 13 8 12 44 41 +3 47
9 Watford 33 13 6 14 43 48 -5 45
10 Sheff Wed 34 12 9 13 46 54 -8 45
11 Middlesbrough 33 12 8 13 51 45 +6 44
12 Norwich 33 11 11 11 51 45 +6 44
13 QPR 33 11 11 11 39 41 -2 44
14 Millwall 33 10 12 11 33 34 -1 42
15 Preston NE 33 9 15 9 35 39 -4 42
16 Oxford United 33 9 11 13 34 47 -13 38
17 Swansea 33 10 7 16 34 46 -12 37
18 Portsmouth 33 9 9 15 41 55 -14 36
19 Stoke City 32 8 11 13 31 40 -9 35
20 Cardiff City 32 7 11 14 35 54 -19 32
21 Hull City 32 7 9 16 32 43 -11 30
22 Derby County 33 7 8 18 33 46 -13 29
23 Plymouth 33 6 11 16 35 67 -32 29
24 Luton 33 7 7 19 31 53 -22 28
Athugasemdir
banner
banner
banner