Jan Bednarek, varnarmaður Southampton, er á leið til portúgalska félagsins Porto.
Bednarek er 29 ára gamall pólskur miðvörður en hann hefur verið í herbúðum Southampton frá 2017 þegar hann gekk til liðs við félagið frá Lech Poznan.
Porto borgar um 7,5 milljónir evra fyrir hann.
Bednarek lék 30 leiki þegar Southampton féll úr úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Hann hefur alls leikið 254 leiki og skorað 11 mörk fyrir Southampton. Porto hafnaði í 3. sæti í pólsku deildinni á síðustu leiktíð.
Liðið er næst sigursælasta félagið í Portúgal á eftir Benfica en Porto hefur unnið deildina 30 sinnum en Benfica 38 sinnum.
Athugasemdir