Villa í slaginn um Calvert-Lewin - Newcastle býst við tilboði frá Liverpool - Man Utd blandar sér í baráttuna um Kolo Muani
   mán 28. júlí 2025 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þróttur Vogum auglýsir eftir þjálfurum í barnastarfið
Mynd: Þróttur Vogum
Mynd: Þróttur Vogum
Þróttur Vogum auglýsir eftir þjálfara eða þjálfurum fyrir barna og unglingastarf félagsins.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. september.

Þróttur Vogum leitar að öflugum og áhugasömum þjálfurum til starfa hjá félaginu næsta tímabil. Viðkomandi þjálfarar heyra undir framkvæmdastjóra félagsins. Þróttur hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um.

Starfssvið
- Umsjón með skipulagningu æfinga og leikja hjá viðkomandi flokki eða flokkum

- Umsjón með þátttöku í mótum viðkomandi flokks eða flokka

- Samskipti við foreldra í gegnum Sportabler

- Samskipti við foreldraráð viðkomandi flokka vegna skipulagningu móta og/eða keppnisferða

- Samstarf við þjálfara félagsins

- Tryggja að áherslur Þróttar séu uppfylltar á æfingum, leikjum og mótum

Menntunar- og hæfniskröfur
- Þjálfaramenntun skilyrði eða áætlun um að mennta sig sem þjálfari

- Góðir samskiptahæfileikar

- Jákvæðni, drifkraftur og frumkvæði

- Brennandi ástríða fyrir að setja mark sitt á starfið iðkendum til heilla

- Áhugi á að takast á við nýjungar og margvísleg verkefni

- Almenn tölvufærni og hæfni til að tjá sig í rituðu og töluðu máli

- Hreint sakavottorð er skilyrði

Þróttur Vogum heldur úti 8. 7. 6. 5. og 4. flokkum í barna og unglingastarfinu. Einnig er félagið með knattspyrnunámskeið á sumrin.

Nánari upplýsingar veitir [email protected] og hægt að hafa samband í síma 892-6789 fyrir 5. ágúst.
Athugasemdir
banner
banner
banner