Real Madrid ætlar að reyna við Bruno Fernandes - Barcelona vill ekki selja Pedri - Sænskur landsliðsmaður til Man City?
   fös 21. febrúar 2025 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England um helgina - Risaslagur á sunnudag
Mynd: EPA
Mynd: EPA
26. umferð enska úrvalsdeildartímabilsins hefst í kvöld þegar nýliðar Leicester City taka á móti Brentford í áhugaverðum slag.

Leicester þarf á sigri að halda í fallbaráttunni þar sem liðið er tveimur stigum frá öruggu sæti í deildinni. Brentford er í fínni stöðu um miðja deild, níu stigum frá Evrópusæti.

Manchester United heimsækir svo Everton í neðri hluta deildarinnar á morgun, laugardag, áður en Arsenal fær West Ham í heimsókn í Lundúnaslag.

Tottenham heimsækir fallbaráttulið Ipswich Town áður en Aston Villa tekur á móti Chelsea í stórleik dagsins.

Að lokum eru tveir leikir á dagskrá á sunnudaginn þar sem Newcastle spilar við Nottingham Forest í Meistaradeildarbaráttunni áður en stórleikur helgarinnar fer fram á Etihad leikvanginum.

Englandsmeistarar Manchester City taka þar á móti toppliði Liverpool í gríðarlega eftirvæntum slag.

Föstudagur
20:00 Leicester - Brentford

Laugardagur
12:30 Everton - Man Utd
15:00 Bournemouth - Wolves
15:00 Arsenal - West Ham
15:00 Fulham - Crystal Palace
15:00 Ipswich Town - Tottenham
15:00 Southampton - Brighton
17:30 Aston Villa - Chelsea

Sunnudagur
14:00 Newcastle - Nott. Forest
16:30 Man City - Liverpool
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Liverpool 29 21 7 1 69 27 +42 70
2 Arsenal 29 16 10 3 53 24 +29 58
3 Nott. Forest 29 16 6 7 49 35 +14 54
4 Chelsea 29 14 7 8 53 37 +16 49
5 Man City 29 14 6 9 55 40 +15 48
6 Newcastle 28 14 5 9 47 38 +9 47
7 Brighton 29 12 11 6 48 42 +6 47
8 Fulham 29 12 9 8 43 38 +5 45
9 Aston Villa 29 12 9 8 41 45 -4 45
10 Bournemouth 29 12 8 9 48 36 +12 44
11 Brentford 29 12 5 12 50 45 +5 41
12 Crystal Palace 28 10 9 9 36 33 +3 39
13 Man Utd 29 10 7 12 37 40 -3 37
14 Tottenham 29 10 4 15 55 43 +12 34
15 Everton 29 7 13 9 32 36 -4 34
16 West Ham 29 9 7 13 33 49 -16 34
17 Wolves 29 7 5 17 40 58 -18 26
18 Ipswich Town 29 3 8 18 28 62 -34 17
19 Leicester 29 4 5 20 25 65 -40 17
20 Southampton 29 2 3 24 21 70 -49 9
Athugasemdir
banner
banner
banner