Arsenal horfir til Ekitike - Sancho vill fara aftur til Þýskalands - Newcastle vill Quansah
banner
   lau 22. febrúar 2025 19:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Rashford lagði upp bæði mörkin í endurkomu Aston Villa
Marco Asensio skoraði bæði mörk Aston Villa í kvöld
Marco Asensio skoraði bæði mörk Aston Villa í kvöld
Mynd: EPA
Aston Villa 2 - 1 Chelsea
0-1 Enzo Fernandez ('9 )
1-1 Marco Asensio ('57 )
2-1 Marco Asensio ('89 )

Aston Villa vann frábæran endurkomusigur gegn Chelsea á Villa Park í kvöld. Aðeins einu stigi munar á liðunum í deildinni eftir úrslit dagsins.

Enzo Fernandez kom Chelsea yfir snemma leiks en hann stýrði boltanum í netið á opið markið eftir fyrirgjöf frá Pedro Neto.

Chelsea fékk færi í fyrri hálfleiknum til að bæta við og Aston Villa beitti hættulegum skyndisóknum en Chelsea var með eins marks forystu í hálfleik.

Marcus Rashford byrjaði á bekknum hjá Aston Villa en hann kom inn á í seinni hálfleik. Hann lagði upp jöfnunarmark á Marco Asensio sem var að skora sitt fyrsta mark en hann kom til liðsins frá PSG á láni í janúar.

Aston Villa var með öll völd á vellinum undir lokin og Rashford átti sendingu inn á teiginn á lokamínútu venjulegs leiktíma og aftur var Asensio mættur. Hann átti skot sem Filip Jörgensen náði ekki að grípa og boltinn rúllaði undir hann og í netið.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Liverpool 29 21 7 1 69 27 +42 70
2 Arsenal 29 16 10 3 53 24 +29 58
3 Nott. Forest 29 16 6 7 49 35 +14 54
4 Chelsea 29 14 7 8 53 37 +16 49
5 Man City 29 14 6 9 55 40 +15 48
6 Newcastle 28 14 5 9 47 38 +9 47
7 Brighton 29 12 11 6 48 42 +6 47
8 Fulham 29 12 9 8 43 38 +5 45
9 Aston Villa 29 12 9 8 41 45 -4 45
10 Bournemouth 29 12 8 9 48 36 +12 44
11 Brentford 29 12 5 12 50 45 +5 41
12 Crystal Palace 28 10 9 9 36 33 +3 39
13 Man Utd 29 10 7 12 37 40 -3 37
14 Tottenham 29 10 4 15 55 43 +12 34
15 Everton 29 7 13 9 32 36 -4 34
16 West Ham 29 9 7 13 33 49 -16 34
17 Wolves 29 7 5 17 40 58 -18 26
18 Ipswich Town 29 3 8 18 28 62 -34 17
19 Leicester 29 4 5 20 25 65 -40 17
20 Southampton 29 2 3 24 21 70 -49 9
Athugasemdir
banner
banner
banner