Arsenal horfir til Ekitike - Sancho vill fara aftur til Þýskalands - Newcastle vill Quansah
   lau 22. febrúar 2025 21:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalía: Lautaro Martinez með sigurmarkið og Inter á toppinn
Hakan Calhanoglu og Lautaro Martinez
Hakan Calhanoglu og Lautaro Martinez
Mynd: EPA
Inter 1 - 0 Genoa
1-0 Lautaro Martinez ('78 )

Lautaro Martinez var hetja Inter þegar liðið vann nauman sigur á Genoa á heimavelli í ítölsku deildinni í kvöld.

Genoa varðist mjög vel í fyrri hálfleik og Inter komst hvorki lönd né strönd.

Inter náði að ógna markinu í seinni hálfleik en Nicolo Barella komst nálægt því að skora þegar hann átti skot í samskeytin. Genoa fékk einnig tækifæri en Josep Martinez, sem var í markinu í fjarveru Yann Sommer, stóð vaktina vel.

Það var síðan Lautaro Martinez sem braut ísinn þegar hann skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu frá Hakan Calhanoglu en boltinn hafði viðkomu í varnarmanni á leiðinni í netið.

Inter er komið á toppinn í bili að minnsta kosti en liðið er með 57 stig eftir 26 umferðir. Napoli er stigi á eftir og spilar gegn Como á morgun. Napoli og Inter mætast um næstu helgi. Genoa er í 12. sæti með 30 stig.
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 29 19 7 3 65 27 +38 64
2 Napoli 29 18 7 4 45 23 +22 61
3 Atalanta 29 17 7 5 63 28 +35 58
4 Bologna 29 14 11 4 49 34 +15 53
5 Juventus 29 13 13 3 45 28 +17 52
6 Lazio 29 15 6 8 50 41 +9 51
7 Roma 29 14 7 8 44 30 +14 49
8 Fiorentina 29 14 6 9 46 30 +16 48
9 Milan 29 13 8 8 44 33 +11 47
10 Udinese 29 11 7 11 35 39 -4 40
11 Torino 29 9 11 9 34 34 0 38
12 Genoa 29 8 11 10 28 37 -9 35
13 Como 29 7 8 14 35 46 -11 29
14 Verona 29 9 2 18 29 58 -29 29
15 Cagliari 29 6 8 15 28 44 -16 26
16 Parma 29 5 10 14 35 49 -14 25
17 Lecce 29 6 7 16 21 48 -27 25
18 Empoli 29 4 10 15 23 46 -23 22
19 Venezia 29 3 11 15 23 42 -19 20
20 Monza 29 2 9 18 24 49 -25 15
Athugasemdir
banner
banner
banner