Arsenal horfir til Ekitike - Sancho vill fara aftur til Þýskalands - Newcastle vill Quansah
   lau 22. febrúar 2025 19:12
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalía: Slæm vika hjá Milan - Fyrsta vítaklúður Pulisic á ferlinum
Mynd: EPA
Torino 2 - 1 Milan
1-0 Malick Thiaw ('5 , sjálfsmark)
1-0 Christian Pulisic ('32 , Misnotað víti)
1-1 Tijani Reijnders ('74 )
2-1 Gvidas Gineitis ('76 )

Tímabilið hefur verið mikil vonbrigði hjá MIlan en liðið féll úr leik í Meistaradeildinni í vikunni. Þá er liðið í 7. sæti ítölsku deildarinnar eftir tap gegn Torino í kvöld.

Torino komst yfir snemma leiks en Mike Maignan ætlaði að hreinsa frá en Malick Thiaw var nálægt og fékk boltann í sig og þaðan fór hann í netið.

Eftir hálftíma leik fékk Milan vítaspyrnu og Christian Pulisic steig á punktinn. Vanja Milinkovic-Savic, markvörður Torino, varði hins vegar spyrnuna frá honum.

Þetta var í fyrsta sinn á ferlinum sem Pulisic klúðrar vítaspyrnu en hann hafði skorað úr tólf vítaspyrnum í röð. Milinkovic-Savic er mikill vítabani en hann hefur verið fjórar af fimm vítaspyrnum sem liðið hefur fengið á sig á þessari leeiktíð.

Tijani Rejnders tókst að jafna metin fyrir Milan en það stóð ekki lengi því Gvidas Gineitis tryggði Torino stigin þrjú stuttu síðar.
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 29 19 7 3 65 27 +38 64
2 Napoli 29 18 7 4 45 23 +22 61
3 Atalanta 29 17 7 5 63 28 +35 58
4 Bologna 29 14 11 4 49 34 +15 53
5 Juventus 29 13 13 3 45 28 +17 52
6 Lazio 29 15 6 8 50 41 +9 51
7 Roma 29 14 7 8 44 30 +14 49
8 Fiorentina 29 14 6 9 46 30 +16 48
9 Milan 29 13 8 8 44 33 +11 47
10 Udinese 29 11 7 11 35 39 -4 40
11 Torino 29 9 11 9 34 34 0 38
12 Genoa 29 8 11 10 28 37 -9 35
13 Como 29 7 8 14 35 46 -11 29
14 Verona 29 9 2 18 29 58 -29 29
15 Cagliari 29 6 8 15 28 44 -16 26
16 Parma 29 5 10 14 35 49 -14 25
17 Lecce 29 6 7 16 21 48 -27 25
18 Empoli 29 4 10 15 23 46 -23 22
19 Venezia 29 3 11 15 23 42 -19 20
20 Monza 29 2 9 18 24 49 -25 15
Athugasemdir
banner
banner