Díaz á förum frá Liverpool - Newcastle fær markvörð Burnley - Man City ætlar að losa sig við reynda leikmenn
   lau 22. febrúar 2025 17:48
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þýskaland: Leverkusen með dýrmætan sigur á botnliðinu
Mynd: EPA
Leverkusen vann botnlið Holstein Kiel í þýsku deildinni í dag. Leverkusen er fimm stigum frá toppliði Bayern sem á leik til góða.

Patrick Schick kom Leverkusen yfir snemma leiks þegar hann skoraði af stuttu færi, hans áttunda mark í síðustu ellefu leikjum.

Amine Adli bætti öðru markinu við undir lok fyrri hálfleiks. Florian Wirtz vann boltann eftir slæma sendingu frá varnarmanni Holstein á vallarhelmingi Holstein liðsins. Hann sendi svo boltann í gegn og Adli skoraði af öryggi.

Wolfsburg og Gladbach misstigu sig í baráttunni um Evrópusæti en Mainz komst upp í 5. sæti með sigri á St.Pauli.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - konur
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern W 15 12 2 1 38 11 +27 38
2 Eintracht Frankfurt W 15 11 2 2 51 13 +38 35
3 Wolfsburg 15 11 2 2 39 11 +28 35
4 Bayer W 15 9 3 3 24 14 +10 30
5 RB Leipzig W 15 8 1 6 26 25 +1 25
6 Hoffenheim W 15 8 0 7 26 21 +5 24
7 Freiburg W 14 7 2 5 22 22 0 23
8 Werder W 15 6 2 7 19 24 -5 20
9 Essen W 15 3 4 8 14 18 -4 13
10 Koln W 15 1 4 10 10 36 -26 7
11 Carl Zeiss Jena W 14 0 3 11 4 30 -26 3
12 Potsdam W 15 0 1 14 3 51 -48 1
Athugasemdir
banner
banner