Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði, og Guðni Bergsson, einn besti varnarmaður sem Ísland hefur átt, eru gestir í HM-stofu RÚV sem er í fullum gangi. Rætt var við þá um atvikið ótrúlega í leik Ítalíu og Úrúgvæ þar sem Luis Suarez beit mótherja sinn.
„Þetta hefur komið fyrir áður. Hann virðist ekki ætla að læra af hlutunum. Það er slæmt að þetta komi fyrir aftur og aftur. Hann er fyrirmynd og ungir krakkar sjá þetta," sagði Aron Einar en Suarez hefur tvívegis verið dæmdur fyrir að bíta andstæðinga sína.
„Hann hefur ekki stjórn á sínu skapi og sínum gjörðum," sagði Guðni Bergsson.
„Að láta sér detta þetta í hug eftir að hafa verið tvisvar dæmdur í langt bann. Það er algjörlega galið að bíta í andstæðing og greinilegt að hann missir stjórn á sér í vissum tilfellum."
„Ég trúi ekki öðru miðað við þessar myndir en að hann muni hljóta langt bann. Hann fékk tíu leikja bann þegar hann beit Ivanovic í ensku úrvalsdeildinni."
„FIFA hefur leyfi til að dæma hann í langt landsleikjabann en líka í alhliða leikbann ef sérstakar aðstæður koma upp eins og mögulega í þessu tilfelli. Þetta er í þriðja sinn sem hann gerir þetta og gæti FIFA dregið línuna djúpt í þennan sand. Hann gæti séð fram á mjög langt bann," sagði Guðni.
Guðni hefði gefið Marchisio gult
Það var líka óánægja með rauða spjaldið sem Claudio Marchisio, leikmaður Ítalíu, fékk en Aroni finnst það hafa verið réttur dómur.
„Mér sýnist þetta vera rautt. Hann fer of hátt með löppina. Þetta er svipað dæmi og með Mandzukic og Jóa Berg á sínum tíma," sagði Aron en Guðna finnst dómurinn strangur.
„Hann hefði getað látið gula spjaldið duga en hann getur réttlætt þennan dóma og kannski ekki mikið hægt að kvarta. Marchisio fer hátt með löppina en ég hefði viljað sjá gult spjald á þetta," sagði Guðni.
Fréttir af biti Suarez:
Chiellini: Suarez kemst upp með að vera naðra
Myndband með öllum bitum Suarez
Myndaveisla af Suarez að bíta andstæðing
Viðbrögð af Twitter
Frétt um atvikið
Taktu þátt í HM-umræðunni á Facebook! Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook þar sem oft skapast líflegar umræður um boltann.

