„Við munum tafarlaust safna saman öllum upplýsingum til að rannsaka þetta mál," segir talsmaður FIFA um bitmál Luis Suarez. Úrúgvæski sóknarmaðurinn beit Giorgio Chiellini í leik Ítalíu og Úrúgvæ í dag.
Atvikið fór framhjá dómurum leiksins og þá fer það í hendur aganefndar FIFA að dæma.
Atvikið fór framhjá dómurum leiksins og þá fer það í hendur aganefndar FIFA að dæma.
Samkvæmt Guardian er hámarksrefsing fyrir atvikið 24 leikja bann samkvæmt reglum FIFA.
„Það vita það allir að Luis Suarez er frábær fótboltamaður en enn og aftur beinast spjótin að honum vegna hegðunar hans. FIFA verður að rannsaka þetta mál með alvarlegum augum og bregðast rétt við,"segir Jim Boyce, varaformaður FIFA.
Þetta mál gæti gert það að verkum að Luis Suarez fari í alhliða keppnisbann og megi þar af leiðandi ekki spila með liði sínu Liverpool meðan bannið er í gildi.
„FIFA hefur leyfi til að dæma hann í langt landsleikjabann en líka í alhliða leikbann ef sérstakar aðstæður koma upp eins og mögulega í þessu tilfelli. Þetta er í þriðja sinn sem hann gerir þetta og gæti FIFA dregið línuna djúpt í þennan sand. Hann gæti séð fram á mjög langt bann," sagði Guðni Bergsson á RÚV en þetta er í þriðja sinn sem Suarez kemst í vesen fyrir að bíta andstæðing.
Umdeild atvik tengd Suarez:
Júlí 2010 - Ver boltann með hendi á línu og kemur í veg fyrir sigurmark Gana á HM. Asamoah Gyan klúðrar vítinu sem dæmt var og Úrúgvæ vinnur leikinn í vítaspyrnukeppni.
Nóvember 2010 - Fær sjö leikja bann sem leikmaður Ajax fyrir að bíta Otman Bakkal, leikmann PSV Eindhoven, í öxlina.
Desember 2011 - Fær átta leikja bann og sekt fyrir kynþáttaníð í garð Patrice Evra hjá Manchester United.
Febrúar 2012 - Neitar að taka í höndina á Evra á Old Trafford.
Apríl 2013 - Suarez gefur frá sér opinberlega afsökunarbeiðni fyrir að bíta Branislav Ivanovic en fær tíu leikja bann.
Júní 2014 - Sleppur við rautt spjald þrátt fyrir að bíta Giorgio Chiellini í leik Ítalíu og Úrúgvæ.
Fréttir af biti Suarez:
Aron Einar: Suarez virðist ekki ætla að læra
Chiellini: Suarez kemst upp með að vera naðra
Myndband með öllum bitum Suarez
Myndaveisla af Suarez að bíta andstæðing
Viðbrögð af Twitter
Frétt um atvikið
Taktu þátt í HM-umræðunni á Facebook! Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook þar sem oft skapast líflegar umræður um boltann.


