3 hrein lök í röð hjá Leiknismönnum
"Þetta er búið að ganga vel undanfarið - við erum virkilega þéttir varnarlega og erum að ná að beita góðum skyndisóknum" sagði Bjarki Aðalsteinsson um sigurinn í kvöld sem var sá fjórði í röð hjá Leiknisliðinu og kannski óhætt að segja að liðið sé funheitt þessa dagana.
Lestu um leikinn: Leiknir R. 1 - 0 Þróttur R.
"Við fundum svolítið taktinn í FH leiknum og meðan við erum þéttir - við erum góðir meðan við erum allir á bakvið boltann og erum að vinna varnarlega vel og höfum svolítið fundið takinn í undanförnum leikjum" sagði Bjarki um gott gengi Leiknisliðsins í ðsíðustu leikjum
Pressa Þróttara var orðin ansi stíf eftir því sem leið á síðari hálfleikinn. Var komið einhver ótti um að missa niður forystuna.
"Ekki með Eyjó í þessum gír svaraði Bjarki og glotti um tönn en Eyjólfur hefur verið feykilega öflugur í síðustu leikjum.
Allt viðtalið má svo heyra í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir






















