Rashford, Senesi, Delap, Sancho, Rogers, Richarlison, Goretzka og fleiri góðir koma við sögu í slúðri dagsins
   fös 30. janúar 2026 06:00
Elvar Geir Magnússon
Dregið í umspilið klukkan 11 - Leiðin til Búdapest
Úrslitaleikurinn í ár verður á Puskas leikvangnum í Ungverjalandi.
Úrslitaleikurinn í ár verður á Puskas leikvangnum í Ungverjalandi.
Mynd: EPA
Það kemur í ljós í dag, föstudag, hvaða mótherja þau 16 lið sem eru í umspili Meistaradeildarinnar munu fá. Um er að ræða liðin sem enduðu í sætum 9-24 en efstu átta liðin komust beint í 16-liða úrslitin.

Dregið verður í umspilið klukkan 11:00 að íslenskum tíma í Sviss.

Smelltu hér til að horfa á dráttinn í beinni útsendingu

Fyrri leikirnir í umspilinu verða 17. og 18. febrúar og seinni leikirnir svo viku síðar.

Hvert lið á möguleika á tveimur mótherjum. Liðin sem enduðu í 9. og 10. sæti (Real Madrid og Inter) geta semsagt mætt liðunum sem enduðu í 23. og 24. sæti (Bodö/Glimt eða Benfica).

Newcastle endaðí 12. sæti og er parað með PSG sem endaði í ellefta sæti. Þessi lið mæta því annað hvort Mónakó eða Qarabag sem voru í 21. og 22. sæti.

Ef Newcastle kemst áfram í 16-liða úrslit þá bíða Barcelona eða Chelsea. 16-liða úrslitin verða spiluð í mars og keppninni lýkur svo með úrslitaleik í Búdapest 30. maí.
Mynd: Meistaradeildin


Liðin sem eru í umspilinu:
9: Real Madrid
10: Inter
11: PSG
12: Newcastle
13: Juventus
14: Atletico Madrid
15: Atalanta
16: Bayer Leverkusen
17: Borussia Dortmund
18: Olympiakos
19: Club Brugge
20: Galatasaray
21: Mónakó
22: Qarabag
23: Bodö/Glimt
24: Benfica
Stöðutaflan Evrópa Meistaradeildin
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 8 8 0 0 23 4 +19 24
2 Bayern 8 7 0 1 22 8 +14 21
3 Liverpool 8 6 0 2 20 8 +12 18
4 Tottenham 8 5 2 1 17 7 +10 17
5 Barcelona 8 5 1 2 22 14 +8 16
6 Chelsea 8 5 1 2 17 10 +7 16
7 Sporting 8 5 1 2 17 11 +6 16
8 Man City 8 5 1 2 15 9 +6 16
9 Real Madrid 8 5 0 3 21 12 +9 15
10 Inter 8 5 0 3 15 7 +8 15
11 PSG 8 4 2 2 21 11 +10 14
12 Newcastle 8 4 2 2 17 7 +10 14
13 Juventus 8 3 4 1 14 10 +4 13
14 Atletico Madrid 8 4 1 3 17 15 +2 13
15 Atalanta 8 4 1 3 10 10 0 13
16 Leverkusen 8 3 3 2 13 14 -1 12
17 Dortmund 8 3 2 3 19 17 +2 11
18 Olympiakos 8 3 2 3 10 14 -4 11
19 Club Brugge 8 3 1 4 15 17 -2 10
20 Galatasaray 8 3 1 4 9 11 -2 10
21 Mónakó 8 2 4 2 8 14 -6 10
22 Qarabag 8 3 1 4 13 21 -8 10
23 Bodö/Glimt 8 2 3 3 14 15 -1 9
24 Benfica 8 3 0 5 10 12 -2 9
25 Marseille 8 3 0 5 11 14 -3 9
26 Pafos FC 8 2 3 3 8 11 -3 9
27 St. Gilloise 8 3 0 5 8 17 -9 9
28 PSV 8 2 2 4 16 16 0 8
29 Athletic 8 2 2 4 9 14 -5 8
30 Napoli 8 2 2 4 9 15 -6 8
31 FCK 8 2 2 4 12 21 -9 8
32 Ajax 8 2 0 6 8 21 -13 6
33 Frankfurt 8 1 1 6 10 21 -11 4
34 Slavia Prag 8 0 3 5 5 19 -14 3
35 Villarreal 8 0 1 7 5 18 -13 1
36 Kairat 8 0 1 7 7 22 -15 1
Athugasemdir
banner
banner
banner