
Máni Austmann Hilmarsson er samkvæmt heimildum Fótbolta.net að ganga í raðir Fylkis.
Hann er 27 ára sóknarmaður sem var með lausan samning við Fjölni eftir að hafa komist að samkomulagi um riftun á samningi fyrr í sumar.
Hann er 27 ára sóknarmaður sem var með lausan samning við Fjölni eftir að hafa komist að samkomulagi um riftun á samningi fyrr í sumar.
Máni er uppalinn hjá Stjörnunni en hefur einnig verið á mála hjá FCK, ÍR, HK, Leikni og FH á sínum ferli.
Hann var markahæsti leikmaður Fjölnis á síðasta tímabili með 14 mörk í deild og bikar.
Fylkir vann langþráðan sigur á Völsungi á laugardag og horfir upp töfluna í Lengjudeildinni. Máni fær líklega leikheimild fyrir leik Fylkis og Njarðvíkur 18. júlí, en glugginn opnar daginn áður.
Athugasemdir