„Mér líður bara ágætlega með þetta, fínt stig á útivelli. Mér fannst við samt eiga svo góð færi að við gátum unnið þennan leik," sagði Ingibjörg Sigurðardóttir, varnarmaður Íslands, eftir 1-1 jafnefli gegn Austurríki í undankeppni EM 2025.
„Þetta er fínn útgangspunktur fyrir næsta leik."
„Þetta er fínn útgangspunktur fyrir næsta leik."
Lestu um leikinn: Austurríki 1 - 1 Ísland
„Við verðum eiginlega að klára þessi færi sko. Þetta fór eins og það fór. Þær settu líka alveg góða pressu á okkur í lokin. Mér fannst við samt heilt yfir vera betra liðið."
Glódís Perla Viggósdóttir, sem spilar við hlið Ingibjargar í vörninni, skoraði eina mark leiksins af vítapunktinum.
„Ég var smá stressuð. Ég hef aldrei séð hana taka víti, en hún kláraði þetta. Glódís var alltaf að fara að klára þetta. Auðvitað setur maður hana á punktinn. Þú vilt ekki hafa neina nema hana í þessum augnablikum. En ég hef aldrei séð hana taka víti."
Vítaspyrnan var örugg. „Þetta var mjög flott víti og ég hrósaði henni alveg fyrir það," sagði Ingibjörg og hló.
Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir