Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 23. desember 2007 11:36
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: BBC 
Slúðurpakki dagsins - Liverpool til sölu á ný?
Vilja þeir selja Liverpool aftur?
Vilja þeir selja Liverpool aftur?
Mynd: Getty Images
Leroy Lita er á óskalista Roy Keane.
Leroy Lita er á óskalista Roy Keane.
Mynd: Getty Images
Þá er komið að slúðurpakka dagsins sem BBC hefur tekið saman úr ensku blöðunum í dag og við birtum í íslenskri þýðingu hér að neðan.

Fabio Capello mun gera David Beckham að fyrirliða enska landsliðsins samkvæmt því sem Roberto Carlos fyrrum liðsfélagi hans segir. (Observer)

Capello ætlar að leggja línurnar þegar enski hópurinn hittist næst. Hann ætlar að undirstrika hegðunarreglur og hvaða viðhorfs sé vænst. Hver sá sem uppfyllir þær kröfur ekki verður ekki í hópnum. (News of the World)

Capello mun verða harður þjálfari og sættir sig ekki við neina slæma hegðun leikmanna innan eða utan vallar. (Sunday Express)

Capello mun þéna 17 milljónir punda ef England vinnur HM 2010. (Sunday Mirror)

Alan Shearer fyrrum fyrirliði Englands ætlar að hafna boði um að verða í þjálfaraliði Capello. (Sunday Mirror)

Jürgen Klinsmann fyrrum þjálfari þýska landsliðsins og leikmaður Tottenham er efstur á óskalista Fulham sem eftirmaður Lawrie Sanchez í knattspyrnustjóra stöðunni. (Sunday Express)

Náinn vinur Graeme Souness segir að hann vilji verða eftirmaður Sanchez. (News of the World)

Slaven Bilic þjálfari Króatíu útilokar að taka við starfinu hjá Fulham. (Observer)

Nicolas Anelka mun verða eftirmaður Didier Drogba hjá Chelsea ef hann yfirgefur félagið í janúar. (Ýmsir miðlar)

Chelsea munu hinsvegar þurfa að fara í kapphlaup við Manchester United sem hafa einnig áhuga á að fá þennan framherja Bolton. (Sunday Mirror)

David Bentley kantmaður Blackburn Rovers er á óskalista Valencia og Atletico Madrid á Spáni og er metinn á 10 milljónir punda. (Sunday Mirror)

Harry Redknapp stjóri Porstmouth ætlar að reyna að fá Peter Crouch framherja Liverpool og Jermain Defoe framherja Tottenham til að styrkja framlínukosti sína. (Observer)

Benni McCarthy og Mark Viduka verða væntanlega notaðir sem skiptimynt gegn hvorum öðrum. McCarthy hjá Blackburn og Viduka hjá Newcastle eru sagðir ósáttir hjá núverandi félögum. (News of the World)

Tottenham virðast hafa unnið baráttuna um að næla í Alan Hutton bakvörð Rangers og skoska landsliðsins. (Mail on Sunday)

Darren Bent framherji Tottenham er á óskalista West Ham þó Juande Ramos vilji halda honum hjá félaginu. (Mail on Sunday)

Liverpool munu ganga frá kaupum á tékkneska varnarmanninum Tomas Ujfalusi frá Fiorentina 500 þúsund pund. (News of the World)

Roy Keane stjóri Sunderland ætlar að fá Leroy Lita framherja Reading til félagsins. Reading hafa sett 5 milljón punda verðmiða á framherjann sem er 22 ára gamall. (News of the World)

Inter Milan ætla að borga hvað sem er fyrir Elano framherja Man City. (News of the World)

Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool ætlar að hafa sigur á Sir Alex Ferguson með því að kaupa loksins Gabriel Heinze. (People)

Liverpool og Chelsea munu berjast um kaup á David Silva framherja Valencia. (News of the World)

Innan við ári eftir að hafa keypt Liverpool eru Bandaríkjamennirnir Tom Hicks og George Gillett líklega að neyðast til að selja félagið af fjárhaglegum ástæðum. (News of the World)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner