,,Ég er þokkalega sáttur við eitt stig, en hefði viljað fá þrjú stig," voru fyrstu viðbrögð Jón Páls Pálmasonar, þjálfara Fylkis, eftir 1-1 jafntefli gegn Breiðablik í kvöld.
,,Okkur vantaði aðeins meiri ró sóknarlega, en varnalega spilum við frábærlega."
Jón Páll segir að hann hefði viljað fá fleiri leikmenn til liðs við liðið: ,,Við misstum 6-7 leikmenn sem annaðhvort vildu fara, hættu knattspyrnuiðkun og það var ekki hægt að fá mikið af leikmönnum. Vissulega fengum við tvo markmenn og Sössu(Alexandra Tooth) sem spilaði með Þrótti í fyrra."
,,Það má lítið út af bregða hjá okkur og við hefðum viljað fá meiri styrk og það var talað um það til að byrja með, en það virðist skipta meira máli að styrkja karlaliðið," sagði Jón Páll.
Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.























