,,Það er alltaf súrt að tapa og ég tala nú ekki um á heimavelli í ,,derby-slag" sagði Gunnar Magnús Jónsson þjálfari Njarðvíkur eftir 2-0 tap gegn Reyni Sandgerði í 2. deildinni í fyrradag.
Njarðvík sigraði ÍR úr 1. deild í bikarkeppninni í síðustu viku en Gunnar telur að sá sigur hafi ekki ennþá verið í hausnum á mönnum.
,,Ég held að það hafi ekki setið í okkur, ég held að það hafi alls ekki verið málið."
Njarðvík er með eitt stig eftir fyrstu tvær umferðirnar en liðið mætir Dalvík/Reyni um næstu helgi.
,,Tímabilið fer ekki af stað eins og við ætluðum okkur en þetta eru allt hörkuleikir, það er vika í næsta leik og við þurfum bara að gíra okkur upp í það."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.






















