Eddie Howe, stjóri Bournemouth, var svekktur eftir 2-1 tap gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Bournemouth byrjaði mikið betur og náði sanngjarnt forystunni en eftir því sem leið á leikinn varð United sterkari aðilinn. Bournemouth bauð hættunni heim í síðari hálfleik.
„Það er erfitt að taka þessu. Við spiluðum vel, sérstaklega í fyrri hálfleik. Við áttum meira skiið en þetta eina mark," sagði Howe eftir leikinn.
„Það hefði verið gott að klára leikinn þegar við fengum tækifæri til þess en fótbolti virkar ekki þannig. Þeir sýndu gæði í seinni hálfleiknum og varamennirnir þeirra gerðu gæfumuninn."
Við tökum leik fyrir leik. Næsti leikur er Newcastle og það verður erfitt," sagði Howe.
Athugasemdir