Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mið 01. júlí 2009 10:13
Magnús Már Einarsson
Stuðningsmenn ÍBV hita upp fyrir leikinn gegn Fylki í kvöld
Loftmynd af Fylkisvelli þar sem leikurinn fer fram í kvöld.
Loftmynd af Fylkisvelli þar sem leikurinn fer fram í kvöld.
Mynd: Jón Óskar Þórhallsson
Stuðningsmenn ÍBV ætla að efla andann og hittast frá kl. 17:30 á Steak´n Play Grensásvegi fyrir leik Fylkis og ÍBV í kvöld. Leikurinn hefst kl. 19:15.

Gestur Magnússon aðstoðarþjálfari ÍBV mun mæta og tilkynna byrjunarliðið áður en hann rýkur á Fylkisvöllinn og svara spurningum sem brenna á stuðningsmönnum.

Það má fastlega reikna með því að það muni hljóma Eyjalög á staðnum s.s. nýja þjóðhátíðarlagið og að sjálfsögðu Slor og skítur, nema hvað.

Eyjamenn á höfuðborgarsvæðinu ætla ekki að láta sitt eftir liggja og styðja sína menn
Athugasemdir
banner
banner
banner