Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
Elmar Atli: Maður var búinn að bíða eftir þessu
Auður: Gaman að ná að vinna Þrótt sem voru taplausar í deildinni
Haddi: Gjörsamlega óþolandi hvað sumir mega öskra inn á völlinn
Óli Kristjáns: Ábyrgðin á mér og stelpunum
„Við komumst út úr þessu það er klárt mál"
Davíð Smári: Skjaldarmerki þess sem Vestri stendur fyrir
Óskar Smári: Ótrúlega stoltur af liðinu mínu í dag
Murielle Tiernan: Eina sem þú þarft að gera er að setja hann inn
Gummi Kri: Er það ekki svoleiðis sem við viljum hafa þetta?
Tufa um rauða spjaldið: Okk­ur á bekkn­um fannst hann hlaupa á Bjarna og henda sér niður
Jökull: Hefði viljað sjá okkur vera meira 'ruthless' í byrjun leiks
Alli Jói: Er svekktur með sjálfan mig
Haraldur: Kemur auka orka þegar við missum mann af velli
Gunnar Heiðar: Eins og við þyrftum að fá mark í andlitið til þess að allir kveiki á sér
Siggi Höskulds: Svekkjandi að ná ekki að halda þetta lengur út eftir að skora
„Sýnir úr hverju menn eru gerðir þegar það er búið að berja á sér"
Gunnar Már: Sérð það á liðinu að sjálfstraustið er ekkert
Gústi Gylfa eftir fyrsta Breiðholtsslaginn: Ekki slegnir út af laginu
Mætti góðum vini sínum - „Klobbaði hann og þá fékk hann alveg að vita af því"
Jóhann Birnir: Það er akkúrat það sem við ætlum að vera
banner
   fös 02. júní 2017 22:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tóti Dan: Frekar skrýtið að spila á móti strákunum mínum
Þórhallur snéri á sinn gamla heimavöll í kvöld.
Þórhallur snéri á sinn gamla heimavöll í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Þórhallur Dan Jóhannsson, þjálfari Gróttu, var mjög ánægður þegar hann spjallaði við fréttamann Fótbolta.net í kvöld. Hann var mjög kátur eftir að hafa stýrt sínu liði í 1-1 jafntefli gegn Haukum.

„Það er gaman að koma á gamla heimavöllinn og í lognið sem er alltaf á Ásvöllum, maður þurfti ekki einu sinni regnhlíf til þess að standa," sagði Þórhallur býsna léttur í skapi.

Lestu um leikinn: Haukar 1 -  1 Grótta

„Við sættum okkur við stigið, það var vel unnið að þessu, þetta er þriðji leikurinn á einni viku þannig að við erum sáttir."

Grótta spilaði bikarleik í miðri viku og það voru nokkrar þreyttar lappir á Gaman Ferða vellinum í kvöld.

„Það eru menn sem eru búnir að spila 300 mínútur með þessum leik. Við vorum ekki nógu góðir í fyrri hálfleik og þeir svöruðu hálfleiksræðunni nokkuð vel."

„Þeir voru orðnir mjög þreyttir og síðustu fimm mínúturnar snérust um að reyna að halda þetta út og hanga á stiginu."

Þórhallur var aðstoðarþjálfari Hauka síðustu tímabil og hafði áður þjálfað í yngri flokkum auk þess að spila sem leikmaður með liðinu. Hann segir að það hafi verið skrýtin tilfinning að snúa aftur á gamla heimavöll sinn í kvöld.

„Ég er búinn að vera hérna svo lengi á Ásvöllum, þannig að jú, það er frekar skrýtið að vera að spila á móti strákunum mínum í Haukum. Mér finnst ég eiga svolítið mikið í þeim."

Grótta, sem er nýliði í Inkasso-deildinni hefur byrjað tímabilið vel.

„Þetta er maraþon sem við erum í og við þurfum að taka hvert skref í því," sagði hann að lokum.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner