Katrín Ómarsdóttir, leikmaður Liverpool og íslenska landsliðsins, var hress fyrir fyrstu æfingu kvennalandsliðsins í morgun, en hún ræddi um Evrópumótið og tíma sinn hjá Liverpool í viðtali við Fótbolta.net
,,Hópurinn kom saman í gær og fyrsta æfingin allar saman í dag, það er gaman. Það er búið að segja að við ætlum að komast í 8-liða úrslit og að komast upp úr riðlinum er okkar markmið er að reyna það," sagði Katrín.
,,Þetta er frekar erfiður riðill, en markmiðið er að komast út úr honum. Það er erfiðara en að segja það, en það er kannski klisja að segja það en við reynum að fara inn í alla leiki til að vinna þá og vonandi tekst það."
,,Það eru smá meiðsli, en annars eru allar tilbúnar í þetta. Ég held að við séum að fara yfir taktík og sjá heildarmyndina. Allir búnir að vera í tough prógrami og við erum að reyna að setja þetta saman."
Katrín samdi við Liverpool fyrr á þessu ári, en hún gerði tveggja ára samning við félagið, liðið er í efsta sæti deildarinnar og hefur gengið vel hjá henni að fóta sig í enska boltanum.
,,Það hefur gengið framar vonum, við erum efstar í deildinni og gengur í raun vel. Þetta er nýtt lið og margir nýjir leikmenn, en við smellum saman vel. Ég var stuðningsmaður klúbbsins áður en ég fór, en eftir að hafa verið þarna er ég miklu meiri fan en ég var, þetta er svo flottur klúbbur og gaman að vera partur af þessu."
,,Við æfum ekki á Melwood en sonur hans Carragher er alltaf að æfa á undan okkur, svo hann er alltaf að fylgjast með okkur. Ég missti af æfingunni sem stelpurnar voru með strákunum en þjálfarinn spyr oft Brendan hvernig hann dílar við evrópsku leikmennina í liðinu af því hann öskrar alltaf á þýsku."
,,Ég er með tveggja ára samning og verð alla vega út næsta ár. Mér líður rosalega vel þarna og ég get alveg séð fyrir mér vera áfram þarna. Við æfum ekki eins og stelpurnar í Chelsea, en það er æft rosalega lítið í Englandi, þannig við í Liverpool æfum kannski meira en önnur lið," sagði hún að lokum.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir























