Þeir Vuk Oskar Dimitrijevic og Simon Tibbling voru ekki með Fram gegn Stjörnunni síðasta föstudag. Þjálfarinn Rúnar Kristinsson vonast til að endurheimta þá fyrir leikinn gegn Breiðabliki föstudaginn 29. maí.
Vuk var markahæsti leikmaður liðsins á síðasta tímabili og Svíinn Tibbling hefur verið á meðal bestu miðjumanna deildarinnar frá komu sinni fyrir rúmu ári síðan.
Vuk var markahæsti leikmaður liðsins á síðasta tímabili og Svíinn Tibbling hefur verið á meðal bestu miðjumanna deildarinnar frá komu sinni fyrir rúmu ári síðan.
Lestu um leikinn: Stjarnan 0 - 1 Fram
„Við leyfðum þeim að vera heima og hvíla sig, þeir verða vonandi klárir í næsta leik. Það kemur ekki í ljós fyrr en eftir helgina," sagði Rúnar eftir leikinn gegn Stjörnunni.
„Við erum með góða breidd, erum með marga sem geta spilað leik frá byrjun og það veikir ekki liðið okkar. Í dag með Jakob (Byström), Róbert (Hauksson) og Frey (Sigurðsson) í byrjunarliðinu í fyrsta skiptið í langan tíma þá sjá ég engan stóran mun á því sem við höfum verið að gera undanfarið. Ég er stoltur af þeim, þeir eru búnir að æfa vel og leggja mikið á sig. Auðvitað eru þeir fúlir að fá ekki fleiri mínútur," sagði Rúnar í viðtalinu sem má nálgast í heild sinni neðst. Freyr var valinn maður leiksins á föstudag og Róbert skoraði sigurmarkið.
Rúnar segir að Tibbling sé að glíma við smávægileg ökklameiðsli eftir leikinn gegn KR fyrir rúmri viku síðan, en Vuk glímir við kálfameiðsli.
Fram hefur unnið fjóra af síðustu fimm leikum sínum og situr í 3. sæti deildarinnar eftir átta umferðir.
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Víkingur R. | 8 | 7 | 1 | 0 | 26 - 4 | +22 | 22 |
| 2. KR | 8 | 6 | 1 | 1 | 30 - 19 | +11 | 19 |
| 3. Fram | 8 | 5 | 2 | 1 | 21 - 13 | +8 | 17 |
| 4. Breiðablik | 8 | 4 | 3 | 1 | 19 - 11 | +8 | 15 |
| 5. Valur | 8 | 5 | 0 | 3 | 17 - 14 | +3 | 15 |
| 6. Keflavík | 8 | 3 | 2 | 3 | 11 - 12 | -1 | 11 |
| 7. KA | 8 | 3 | 1 | 4 | 9 - 10 | -1 | 10 |
| 8. ÍA | 8 | 2 | 3 | 3 | 11 - 16 | -5 | 9 |
| 9. Stjarnan | 8 | 2 | 1 | 5 | 14 - 18 | -4 | 7 |
| 10. Þór | 8 | 2 | 0 | 6 | 6 - 20 | -14 | 6 |
| 11. FH | 8 | 0 | 2 | 6 | 12 - 25 | -13 | 2 |
| 12. ÍBV | 8 | 0 | 2 | 6 | 8 - 22 | -14 | 2 |




