Síðustu leikjum kvöldsins er lokið í undankeppni Evrópuþjóða fyrir heimsmeistaramót kvenna.
Finnland rúllaði yfir Slóvakíu í B-deildinni á meðan Skotar settu sex mörk gegn Ísrael. Svisslendingar og Belgar, sem leika undir stjórn Elísabetar Gunnarsdóttur, skoruðu einnig sex mörk í auðveldum sigrum gegn Möltu og Lúxemborg. Belgía og Skotland eru efst og jöfn í riðli 4 eftir fyrstu fimm umferðirnar. Sömu lið og mættust í riðli 4 í kvöld mætast aftur á mánudag. Fyrir lokaumferðina er Skotland með fjórum mörkum betri markatölu en Belgía.
Portúgal gerði þá fimm mörk á móti Lettlandi og hafði Tyrkland naumlega betur gegn Norður-Írlandi.
Í C-deildinni unnu Færeyjar gegn Georgíu og hafði Króatía betur í spennandi slag gegn Kósovó.
Slóvakía 0 - 4 Finnland
Tékkland 1 - 1 Albanía
Svartfjallaland 1 - 1 Wales
Skotland 6 - 0 Ísrael
Tyrkland 2 - 1 N-Írland
Sviss 6 - 1 Malta
Belgía 6 - 0 Lúxemborg
Portúgal 5 - 0 Lettland
Georgía 2 - 3 Færeyjar
Armenía 1 - 1 Kasakstan
Aserbaídsjan 1 - 2 Ungverjaland
Bosnía 0 - 0 Litháen
Búlgaría 3 - 1 Gíbraltar
Moldóva 0 - 0 Rúmenía
Kósovó 0 - 1 Króatía
Liechtenstein 0 - 5 Eistland
Andorra 0 - 1 N-Makedónía



