Kolbeinn Sigþórsson, framherji Ajax og íslenska landsliðsins, var eðlilega svekktur eftir 4-2 tap gegn Slóvenum í kvöld.
,,Takk fyrir að minna mig á það. Það var alveg séns strax í byrjun að setja mark þarna, ég veit ekki hvort ég var tilbúinn eða ekki. Hann kom langt út og ég reyndi að setja hann í hornið en hann stóð vel. Ég hefði getað chippað líka, en ég tók ákvörðun að skjóta og hann varði það," sagði Kolbeinn.
,,Við eigum ekki að tapa á heimavelli og fá á okkur fjögur mörk. Það er óásættanlegt, en að sama skapi erum við ennþá í séns í riðlinum þar sem Albanía og Noregur gerðu jafntefli."
,,Koma boltanum inn, það var það eina sem vantaði. Boltinn bara féll ekki nógu vel með okkur þarna inni í teignum."
,,Það er skelfilegt að missa Aron þarna, hann er gríðarlega mikilvægur leikmaður en það kemur maður í manns stað. Við erum með góðan hóp, en mér fannst tempoið ekki detta niður aðallega það að við breyttum leikstíl," sagði Kolbeinn ennfremur.
Hægt er að sjá
Athugasemdir























