Solanke á sölulista hjá Tottenham - Tilboðum Tottenham og Man Utd í Semenyo hafnað - Tottenham á eftir Samu
   þri 07. október 2025 17:15
Elvar Geir Magnússon
Úkraína missir út annan öflugan leikmann
Eimskip
Tsygankov verður ekki með gegn Íslandi.
Tsygankov verður ekki með gegn Íslandi.
Mynd: Mummi Lú
Mynd: EPA
Úkraína verður án nokkurra mikilvægra leikmanna í þessum glugga en liðið flýgur til Íslands á morgun og leikur á Laugardalsvelli á föstudagskvöld.

Oleksandr Zinchenko, leikmaður Nottingham Forest, er meðal leikmanna sem eru ekki í hópnum þar sem hann er meiddur og nú hefur Viktor Tsygankov, leikmaður Girona á Spáni, dregið sig út vegna meiðsla.

Tsygankov á 61 landsleik og 13 mörk en hann spilar oftast á vængnum en stundum sem sóknarmiðjumaður. Hann missti einnig af síðasta landsleikjaglugga vegna meiðsla.

Bakvörðurinn Oleksandr Tymchyk sem spilar hjá Dynamo Kiev hefur einnig helst úr lestinni.

Leikur Íslands og Úkraínu á föstudagskvöldið er feikilega mikilvægur. Ísland er í öðru sæti riðilsins en það gefur þátttöku í umspili um sæti á HM 2026. Úkraína gerði jafntefli við Aserbaídsjan í síðasta glugga.

Seinni leikur Íslands í glugganum er gegn Frökkum á mánudaginn en á sama tíma leikur Úkraína gegn Aserbaídsjan.
Landslið karla - HM 2026
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Frakkland 4 3 1 0 9 - 3 +6 10
2.    Úkraína 4 2 1 1 8 - 7 +1 7
3.    Ísland 4 1 1 2 11 - 9 +2 4
4.    Aserbaísjan 4 0 1 3 2 - 11 -9 1
Athugasemdir
banner
banner