Mörg stór félög hafa áhuga á Mainoo - Toney og Rodrygo á óskalista Tottenham - Martínez ekki lengur varafyrirliði Villa
   fös 07. nóvember 2025 16:00
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Davíð Smári gestur á X977 á morgun
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Davíð Smári Lamude verður sérstakur gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 á morgun. Þátturinn er klukkan 12 alla laugardaga. Umsjónarmenn eru Elvar Geir og Tómas Þór.

Davíð, sem gerði Vestra að bikarmeisturum í ár, var í vikunni kynntur sem nýr þjálfari Njarðvíkur.

Farið verður yfir allt það helsta í íslenska boltanum.

Þá verður enski boltinn einnig til umfjöllunar og Daníel Geir Moritz, stuðningsmaður Arsenal, velur úrvalslið tímabilsins hingað til.


Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner
banner