PSG og Man Utd gætu gert skiptidíl - Engar viðræður um Salah - Konate má fara fyrir 15 milljónir punda
   mið 05. nóvember 2025 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arteta hrósar yngsta leikmanni í sögu Meistaradeildarinnar
Mynd: EPA
Hinn 15 ára gamli Max Dowman, leikmaður Arsenal, varð yngsti leikmaðurinn til að spila í Meistaradeildinni í gær þegar hann kom inn á sem varamaður í 3-0 sigri gegn Slavia Prag.

Dowman var 15 ára og 308 daga gamall í gær en hann bætti met Youssoufa Moukoko sem var 16 ára og 18 daga gamall þegar hann spilaði fyrir Dortmund gegn Zenit árið 2020. Hann var í byrjunarliði FCK í 5-0 tapi gegn Tottenham í gær.

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, hrósaði Dowman eftir leikinn.

„Hann tekur menn á, hleypur með boltann og nælir í aukaspyrnu. Það er hugrekki sem er ekki hægt að kenna," sagði Arteta.

„Það skiptir ekki máli hvað stendur í vegabréfinu. Maður hendir honum inn í þessar aðstæður og hann aðlagast og sýnir góða frammistöðu."
Athugasemdir
banner