Wirtz, Zubimendi, Osimhen, Zirkzee, Sesko, Kerkez og fleiri góðir koma við sögu í slúðri dagsins
   þri 10. júní 2025 22:27
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Æfingaleikir: Baulað á Englendinga - jafnt hjá lærisveinum Heimis gegn Lúxemborg
Mynd: EPA
England tapaði gegn Senegal í æfingaleik á City Ground í Nottingham í kvöld.

Harry Kane kom Englandi yfir snemma leiks þegar hann fylgdi á eftir skoti frá Anthony Gordon sem Edouard Mendy varði út í teiginn.

Ismaila Sarr, leikmaður Crystal Palace, jafnaði metin eftir undirbúning Nicolas Jackson, leikmanns Chelsea. Habib Diarra, leikmaður Strasbourg í Frakklandi, kom síðan Senegal yfir.

Jude Bellingham hélt að hann hafi jafnað metin undir lokin eftir hornspyrnu. Boltinn fór í höndina á Levi Colwill áður en hann fór til Bellingham og markið var því dæmt af.

Englendingar voru hins vegar ekki parsáttir með þessa ákvörðun þar sem boltinn fór óvart upphandlegginn á Colwill. Cheikh Sabaly innsiglaði síðan sigur Senegal í uppbótatíma. Ensku stuðningsmennirnir létu óánægju sína í ljós og bauluðu í leikslok.

Lærisveinar Heimis Hallgrímssonar gerðu jafntefli gegn Senegal á dögunum en liðið gerði síðan markalaust jafntefli gegn Lúxemborg í kvöld, sennilega ekki úrslit sem Írarnir eru sáttir með.

Christian Eriksen skoraði og lagði upp í öruggum sigri Dana gegn Litháen. Þá unnu Svíar gegn Alsír í markaleik.

Slovenia 2 - 1 Bosnia Herzegovina
1-0 Benjamin Verbic ('63 )
2-0 Andres Vombergar ('89 , víti)
2-1 Tarik Muharemovic ('90 )

Belarus 1 - 4 Russia
0-1 Yaroslav Gladyshev ('21 )
0-2 Yaroslav Gladyshev ('24 )
0-3 Yaroslav Gladyshev ('33 )
0-4 Yaroslav Gladyshev ('52 )
1-4 Vadim Pigas ('54 )

Denmark 5 - 0 Lithuania
1-0 Mika Bierith ('12 )
2-0 Christian Eriksen ('18 )
3-0 Kasper Dolberg ('23 )
4-0 Rasmus Kristensen ('48 )
5-0 Anders Dreyer ('62 )
Rautt spjald: Edgaras Utkus, Lithuania ('32)

Sweden 4 - 3 Algeria
1-0 Ken Sema ('14 )
2-0 Ken Sema ('39 )
3-0 Ken Sema ('50 , víti)
4-0 Anton Saletros ('56 )
4-1 Ismael Bennacer ('64 )
4-2 Yassine Benzia ('71 )
4-3 Nabil Bentaleb ('86 , víti)

England 1 - 3 Senegal
1-0 Harry Kane ('7 )
1-1 Ismaila Sarr ('40 )
1-2 Habib Diarra ('62 )
1-3 Cheikh Sabaly ('90 )

Greece 4 - 0 Bulgaria
1-0 Dimitris Pelkas ('51 )
2-0 Fotis Ioannidis ('66 )
3-0 Christos Tzolis ('74 )
4-0 Ioannis Konstantelias ('89 )

Luxembourg 0 - 0 Ireland

Slovakia 1 - 0 Israel
1-0 Yarden Shua ('47 )
Athugasemdir