Mbeumo gæti farið með Frank til Tottenham - Newcastle reynir við Joao Pedro - Hvert fer Leao?
Arnór Ingvi: Erum að taka inn fullt af upplýsingum
Dagur Dan: Ég skoraði gegn besta leikmanni allra tíma
Caroline Murray: Ég mun sakna þeirra mikið
Óli Kristjáns: Varð fljótlega ljóst að það var spenna hérna í kring um bekkina
Jóhann Kristinn: Fáir sem velta þessu fyrir sér að einhverju viti
Murielle: Fínt að við einar setjum pressu á okkur
Óskar Smári: Það er bara mikil stemning og fjör
Jóhannes Karl: Þetta er skref aftur á bak
Birta Georgs: Fengum hárblásara í hálfleik
Björgvin Karl eftir 6-0 tap: Sumir leikmenn mættu leggja sig meira fram
Nik Chamberlain eftir stórsigur: Verðum að standa undir væntingum
Tindastóll nældi í fyrsta stigið gegn Val - „Stórkostlegur árangur"
Elías Rafn: Sexí varsla frá McTominay
Albert um framtíðina: 15. júní tekur Fiorentina ákvörðun
Gulli vorkenndi markmanni Skota - „Gaf okkur blóð á tennurnar"
Þögguðu niður í skosku stuðningsmönnunum - „Verðum að hætta hugsa um okkur sem litla liðið"
Andri Lucas: Þýðir ekkert annað en að vera bara leiðinlegur til baka
1 á 1 mót Fótbolti.net og Adams Páls 17.júní - Prettyboitjokkó og Nadía Atladóttir skrá sig til leiks
Ívar Ingimars: Veit að við eigum miklu meira inni heldur en þetta
Gylfi Tryggva: Erum ekki að pæla mikið í töflunni
   fös 10. desember 2021 22:16
Arnar Laufdal Arnarsson
Arnar Gunnlaugs: Langt síðan við töpuðum leik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Úrslitaleikurinn í Bose-mótinu fór fram í kvöld er Breiðablik unnu Víking Reykjavík með sannfærandi 5-1 sigri. Markaskorarar Blika voru Kiddi Steindórs, Gísli Eyjólfsson, Höggi Gunnlaugs, Anton Logi og Benedikt Waren en mark Víkinga skoraði Adam Pálsson úr vítapsyrnu.

"Við erum aldrei sáttir með að tapa leik, þetta er tilfinning sem við þekkjum voðalega lítið eða það er mjög langt síðan við töpuðum leik. Töpuðum fyrir góðu liði Blika, fyrri hálfleikurinn var gríðarlega skemmtilegur og þetta var hörkuleikur. Takturinn datt aðeins úr þessu þegar skiptingarnar byrja, menn eru misjafnlega langt komnir í undirbúningi, menn búnir að vera lengi í fríi, sumir byrja fyrr en sumir seinna. En ég er ánægður með vinnuframlagið, gott að fá svona leik í kvöld og leggja inn í fitness bankann."

Það var mikill hiti í leiknum og Arnar sjálfur æstur á hliðarlínunni.

"Það er bara komin ákveðin hefð í víkina að vinna leiki og vinna titla og þannig á það bara að vera, þannig vinnast mót og menn eiga að vera hungraðir. Það voru margir ungir sem fengu tækifærið og vita núna betur hvað þarf að gera til að vera í fremstu röð. Þetta eru tvö bestu liðin á Íslandi í dag það er ekkert flóknara en það þannig menn þurfa aðeins að átta sig á hvar menn standa gagnvart þessum bestu."

Víkingar hafa nú þegar samið við fjóra nýja leikmenn, búast þeir við fleiri leikmönnum fyrir Lengjubikarinn sem hefst í febrúar?

" Kyle (McLagan) kemur til okkar í janúar sem er miðvörður svo fer það bara eftir því hvort við seljum leikmenn eða ekki. Hópurinn okkar er sterkur að mínu mati en mér finnst við vanta einn öflugan miðvörð svo við erum með samkeppni í þeirri stöðu. Við vorum með þrjá sterka í fyrra en með Halla og Kyle erum við bara með tvo og höfum verið að prófa Kalla og Atli í miðverði. Þannig þú getur sagt við séum með fjóra en við þurfum örugglega þrjá hreinræktaða miðverði því það verða svo mikið af leikjum næsta sumar. Þetta er fljótt að gerast ef menn lenda í veseni og þá getur liðið lent í veseni líka."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan en þar talar Arnar um ungu leikmennina sína, stöðu Valgeirs Valgeirssonar, mót erlendis í janúar sem og margt fleira.
Athugasemdir
banner